Útgefin tvö tímabundin starfsleyfi - Niðurrif mannvirkja að Tobbakoti 1 og 3 í Rangárþingi ytra

Tímabundin starfsleyfi hafa verið gefin út hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands í samræmi við ákvæði laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit:

  • Kristján Erling Kjartansson, kt. 160754 7969, Tobbakoti 1, 851 Hella, vegna niðurrifs parhúss, fjárhúss, hlöðu og bogaskemmu að Tobbakoti 1 í Rangárþingi ytra, sjá slóð hér.
  • Rós Ingadóttir, kt. 200853 3269, Tobbakoti 3, 851 Hella, vegna niðurrifs parhúss að Tobbakoti 3 í Rangárþingi ytra, sjá slóð hér.

Vakin er athygli á því að samkvæmt 1. mgr. 65. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, er heimilt að vísa ákvörðun heilbrigðisnefndar máli þessu til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Um aðild, kærufrest, málsmeðferð og annað er varðar kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála fer skv. lögum nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Kæra til úrskurðarnefndarinnar frestar ekki réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 5. gr. ofangreindra laga.

Frestur til að vísa málinu til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála er einn mánuður frá því kæranda varð kunnugt eða mátti vera kunnugt um ákvörðunina. Kæra skal vera skrifleg og undirrituð.