Útgefin starfsleyfi fyrir Veitur ohf - Þorlákshafnar- og Ölfusveita, Austurveita og Hlíðarveita

Starfsleyfi hefur verið gefið út hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands í samræmi við ákvæði laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit:

  • Veitur ohf. vegna Þorlákshafnar- og Ölfusveitu, Bakka 1 og 2, 816 Ölfus.  Sjá slóð hér.
  • Veitur ohf. vegna Austurveitu, Gljúfurárholti, 816 Ölfus. Sjá slóð hér.
  • Veitur ohf. vegna Hlíðarveitu, Efri-Reykjum, 806 Selfoss. Sjá slóð hér.

Vakin er athygli á því að samkvæmt 1. mgr. 65. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, er heimilt að vísa ákvörðun heilbrigðisnefndar máli þessu til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Um aðild, kærufrest, málsmeðferð og annað er varðar kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála fer skv. lögum nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Kæra til úrskurðarnefndarinnar frestar ekki réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 5. gr. ofangreindra laga.

Frestur til að vísa málinu til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála er einn mánuður frá því kæranda varð kunnugt eða mátti vera kunnugt um ákvörðunina. Kæra skal vera skrifleg og undirrituð.