Útgefið tímabundið starfsleyfi fyrir flugeldasýningu 31. desember - Ölfus, Vík, Hvolsvelli
Tímabundið starfsleyfi hefur verið gefið út hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands í samræmi við ákvæði laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit:
- Sveitarfélagið Ölfus, Hafnarberg 1, 815 þorlákshöfn, vegna flugeldasýningar á óbyggðu svæði við enda Óseyrarbrautar í Þorlákshöfn þann 31. desember 2021 kl. 17:00-19:00. Sjá slóð hér
- Björgunarsveitin Víkverji, Smiðjuvegi 15, 870 Vík, vegna flugeldasýningar austan Víkurár við sjóvarnargarða þann 31. desember 2021 kl. 21:15-21:20. Sjá slóð hér
- Rangárþing eystra, Austurvegi 4, 860 Hvolsvelli, vegna flugeldasýningar á túni norðan við götuna Króktún á Hvolsvelli þann 31. desember 2021 kl. 18:00-22:00. Sjá slóð hér
Vakin er athygli á því að samkvæmt 1. mgr. 65. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, er heimilt að vísa ákvörðun heilbrigðisnefndar máli þessu til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Um aðild, kærufrest, málsmeðferð og annað er varðar kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála fer skv. lögum nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Kæra til úrskurðarnefndarinnar frestar ekki réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 5. gr. ofangreindra laga.
Frestur til að vísa málinu til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála er einn mánuður frá því kæranda varð kunnugt eða mátti vera kunnugt um ákvörðunina. Kæra skal vera skrifleg og undirrituð.