Tímabundin undanþága ráðherra frá starfsleyfi vegna flugeldasýningar í Þorlákshöfn 6. ágúst nk.

Skv. 4. mgr. 5. gr. reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit er ráðherra heimilt, ef ríkar ástæður mæla með því og að fenginni umsögn Umhverfisstofnunar og eftir atvikum heilbrigðisnefndar, að veita tímabundna undanþágu frá kröfu um starfsleyfi, enda sé fram komin fullnægjandi starfsleyfisumsókn til útgefanda starfsleyfis. Útgefandi starfsleyfis skal birta undanþágu ráðherra á vefsíðu sinni.

Í samræmi við ofangreint, birtir Heilbrigðiseftirlit Suðurlands eftirfarandi undanþágu ráðherra frá starfsleyfi vegna flugeldasýningar í Þorlákshöfn:

  • Sveitarfélagið Ölfus, kt. 420369 7009, Hafnarbergi 1, 815 Þorlákshöfn, vegna flugeldasýningar við Heilsugæsluna, Selvogsbraut 24 í Þorlákshöfn þann 6. ágúst 2022 kl. 2:45 -23:55 – sjá slóð hér.