Tímabundin undanþága ráðherra frá starfsleyfi vegna flugeldasýninga um áramót

Skv. 4. mgr. 5. gr. reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit er ráðherra heimilt, ef ríkar ástæður mæla með því og að fenginni umsögn Umhverfisstofnunar og eftir atvikum heilbrigðisnefndar, að veita tímabundna undanþágu frá kröfu um starfsleyfi, enda sé fram komin fullnægjandi starfsleyfisumsókn til útgefanda starfsleyfis. Útgefandi starfsleyfis skal birta undanþágu ráðherra á vefsíðu sinni.

Í samræmi við ofangreint, birtir Heilbrigðiseftirlit Suðurlands eftirfarandi undanþágur ráðherra frá starfsleyfi vegna flugeldasýninga um áramót:

  • Hjálparsveitin Tintron, Hraunbraut 20, 805 Selfoss, vegna flugeldasýningar á golfvellinum á Borg, 31. desember 2021 frá kl. 20:30 – 23:00. – sjá slóð hér.
  • Björgunarsveitin Lífgjöf, Hraungerði, 881 Kirkjubæjarklaustur, vegna flugeldasýningar að herjólfstöðum 1, 31. desember 2021 frá kl. 21:00 – 22:00. – sjá slóð hér.
  • Björgunarsveitin Björg, Búðarstíg 21, 820 Eyrarbakka, vegna flugeldasýningar á bryggjunni á Eyrarbakka, 28. desember 2021 frá kl. 20:00 – 21:00. – sjá slóð hér.