Tímabundin undanþága ráðherra frá starfsleyfi vegna flugeldasýninga í Rangárþingi eystra 6. og 8. janúar 2022

Skv. 4. mgr. 5. gr. reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit er ráðherra heimilt, ef ríkar ástæður mæla með því og að fenginni umsögn Umhverfisstofnunar og eftir atvikum heilbrigðisnefndar, að veita tímabundna undanþágu frá kröfu um starfsleyfi, enda sé fram komin fullnægjandi starfsleyfisumsókn til útgefanda starfsleyfis. Útgefandi starfsleyfis skal birta undanþágu ráðherra á vefsíðu sinni.

Í samræmi við ofangreint, birtir Heilbrigðiseftirlit Suðurlands eftirfarandi undanþágur ráðherra frá starfsleyfi vegna flugeldasýninga í Rangárþingi eystra um þrettándann:

  • Rangárþing eystra, kt. 470602-2440, Austurvegi 4, 860 Hvolsvöllur, vegna flugeldasýningar við Seljalandsfoss, 6. janúar 2022 kl. 20:00 – sjá slóð hér.
  • Rangárþing eystra, kt. 470602-2440, Austurvegi 4, 860 Hvolsvöllur, vegna flugeldasýningar í landi Kirkjulækjar í Fljótshlíð vestan við félagsheimilið Goðaland, 8. janúar 2022 kl. 21:30 – sjá slóð hér.