Starfsleyfi útgefið - ÍBV vegna flugeldasýningar og brennu á Þjóðhátíð 4. ágúst 2023

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65a á Selfossi:

  • ÍBV Íþróttafélag, kt. 6801972029, 900 Vestmannaeyjar, vegna flugeldasýningar og brennu stærri en 100 rúmmetrar á Fjósakletti í Herjólfsdal þann 4. ágúst 2023, kl. 23:55 – 04:00 – sjá hér

Athugasemdum skal skilað skriflega til Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, Austurvegi 65a, 800 Selfoss eða á netfangið hsl@hsl.is. Frestur til að gera athugasemdir er til og með 11. júlí 2023.