Starfsleyfi útgefin - Reykjabúið ehf., vegna endurnýjunar starfsleyfa fyrir alifuglabú að Auðsholti, Bakka, Hjalla, Lambhaga og Helludal

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., eru  starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65a á Selfossi:

  • Reykjabúið ehf., Suðurreykjum 1, 270 Mosfellsbæ vegna endurnýjunar starfsleyfa fyrir alifuglabú á eftirtöldum starfsstöðvum:
    • Auðsholti, 816 Ölfusi. Sjá slóð hér.
    • Bakka, 816 Ölfusi. Sjá slóð hér.
    • Hjalla, 816 Ölfusi. Sjá slóð hér.
    • Lambhaga, 816 Ölfusi. Sjá slóð hér.
    • Helludal, Biskupstungum, 806 Selfoss. Sjá slóð hér.
  • Gildistími starfsleyfanna er tólf ár . Vakin er athygli á því að samkvæmt 1. mgr. 65. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, er heimilt að vísa ákvörðun heilbrigðisnefndar máli þessu til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Um aðild, kærufrest, málsmeðferð og annað er varðar kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála fer skv. lögum nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Kæra til úrskurðarnefndarinnar frestar ekki réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 5. gr. ofangreindra laga.Frestur til að vísa málinu til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála er einn mánuður frá því kæranda varð kunnugt eða mátti vera kunnugt um ákvörðunina. Kæra skal vera skrifleg og undirrituð.