Starfsleyfi útgefin N1 bensísntöðvar í Vík, á Flúðum, Laugarvatni og Geysi

Starfsleyfi hafa verið gefin út hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands í samræmi við ákvæði laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit:

  •  N1 ehf. vegna endurnýjunar starfsleyfis fyrir bensínstöðvar án matvæla, Austurvegi 18, 870 Vík. – sjá hér
  •  N1 ehf. vegna endurnýjunar starfsleyfis fyrir bensínstöðvar , sjálfvirkar, Geysi, Haukadal, 801 Selfoss. – sjá hér
  •  N1 ehf. vegna endurnýjunar starfsleyfis fyrir bensínstöðvar, sjálfvirkar, Dalbraut 8, 840 Laugarvatni. – sjá hér
  •  N1 ehf. vegna endurnýjunar starfsleyfis fyrir bensínstöðvar, sjálfvirkar, Grund, 845 Flúðum. – sjá hér

Vakin er athygli á því að samkvæmt 1. mgr. 65. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, er heimilt að vísa ákvörðun heilbrigðisnefndar máli þessu til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Um aðild, kærufrest, málsmeðferð og annað er varðar kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála fer skv. lögum nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Kæra til úrskurðarnefndarinnar frestar ekki réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 5. gr. ofangreindra laga.

Frestur til að vísa málinu til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála er einn mánuður frá því kæranda varð kunnugt eða mátti vera kunnugt um ákvörðunina. Kæra skal vera skrifleg og undirrituð.