Starfsleyfi útgefin - Kælismiðjan Frost, Landsnet vegna Írafoss, Sigöldu, Rimakots og Vélaverkstæði Guðmundar og Lofts

Starfsleyfi hafa verið gefin út hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands í samræmi við ákvæði laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit:

  • Vélaverkstæði Guðmundar og Lofts ehf. Iðu III a, Bláskógabyggð, 801 Selfossi – sjá hér
  • Landsnet hf. Gylfaflöt 9, 112 Reykjavík vegna tengivirkja raforku:
    • Írafossstöð, Grímsnes- og Grafningshreppi, – sjá hér
    • Sigöldu, Skeiða- og Gnúpverjahreppi, – sjá hér
    • Rimakoti, Rangárþingi eystra – sjá hér
  • Kælismiðjan Frost ehf. Fjölnisgötu 4b, 603 Akureyri vegna reksturs kæliþjónustufyrirtækis að Háheiði 9, 800 Selfossi – sjá hér

Vakin er athygli á því að samkvæmt 1. mgr. 65. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, er heimilt að vísa ákvörðun heilbrigðisnefndar máli þessu til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Um aðild, kærufrest, málsmeðferð og annað er varðar kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála fer skv. lögum nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Kæra til úrskurðarnefndarinnar frestar ekki réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 5. gr. ofangreindra laga.

Frestur til að vísa málinu til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála er einn mánuður frá því kæranda varð kunnugt eða mátti vera kunnugt um ákvörðunina. Kæra skal vera skrifleg og undirrituð.