Starfsleyfi útgefið vegna Fosshótel Núpa, Skaftárhreppi, 881 Kirkjubæjarklaustur
Starfsleyfi hefur verið gefið út hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands í samræmi við ákvæði laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og reglugerð nr. 903/2024 um hollustuhætti:
- Fosshótel – Íslandshótel ehf, kt. 6301692919, Sigrúni 28, 105 Reykjavík, vegna hótels með veitingasölu stórt, +100 gesti, eigin vatnsveitu og fráveitu að Núpum, 881 Kirkjubæjarklaustur. Sjá slóð hér
Vakin er athygli á því að samkvæmt 1. mgr. 65. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, er heimilt að vísa ákvörðun heilbrigðisnefndar máli þessu til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Um aðild, kærufrest, málsmeðferð og annað er varðar kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála fer skv. lögum nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Kæra til úrskurðarnefndarinnar frestar ekki réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 5. gr. ofangreindra laga.
Frestur til að vísa málinu til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála er einn mánuður frá því kæranda varð kunnugt eða mátti vera kunnugt um ákvörðunina. Kæra skal vera skrifleg og undirrituð.
