Endurútgáfa starfsleyfis og starfsleyfisskilyrða vegna eigendaskipta - Eden Mining ehf. vegna efnistöku í Lambafelli, Ölfusi

Heilbrigðisnefnd Suðurlands hefur tekið ákvörðun um færslu starfsleyfis Eden ehf., kt. 6703081970, vegna efnistöku í Lambafelli í Ölfusi til Eden Mining ehf., kt. 5410081600, skv. umsókn rekstraraðila um færslu starfsleyfis á nýja kennitölu. Um er að ræða breytingu á starfsleyfi, sbr. 5. gr. reglugerðar nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, en hvorki er um að ræða breytingar á starfseminni sjálfri, staðsetningu hennar, útgefnum starfsleyfisskilyrðum né gildistíma útgefins starfsleyfis.  Starfsleyfið hefur verið endurútgefið með kennitölu nýs rekstaraðila en með sama gildistíma og starfsleyfisskilyrðum og áður, sjá hér.

Vakin er athygli á því að samkvæmt 1. mgr. 65. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, er heimilt að vísa ákvörðun heilbrigðisnefndar máli þessu til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Um aðild, kærufrest, málsmeðferð og annað er varðar kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála fer skv. lögum nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Kæra til úrskurðarnefndarinnar frestar ekki réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 5. gr. ofangreindra laga.

Frestur til að vísa málinu til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála er einn mánuður frá því kæranda varð kunnugt eða mátti vera kunnugt um ákvörðunina. Kæra skal vera skrifleg og undirrituð.