Hollustuhættir
Markmið laga um hollustuhætti er að búa landsmönnum heilnæm lífsskilyrði og vernda þau gildi sem felast í heilnæmu og ómenguðu umhverfi.
Leiðbeiningar / Fræðsla
Einstaklingar sem ætla að reka heimagistingu, sbr. lög nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, með síðari breytingum, og reglugerð nr. 1277/2016 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, þurfa að skrá starfsemina hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu.
Hvaða fyrirtæki eru hollustuháttafyrirtæki?
Heilbrigðisstofnanir, hárgreiðslu- og snyrtistofur, líkamsræktarstöðvar, sundlaugar, fangelsi, leikskólar, grunn- og framhaldsskólar, gistiheimili, fjallaskálar, íbúðarhúsnæði, tjaldsvæði, vistheimili, dagvistarheimili, sólbaðsstofur, samkomuhús ofl.
Lög og reglugerðir
Um er að ræða eftirlit með fyrirtækjum sem falla undir reglugerð nr. 903/2024 um hollustuhætti
Stofnanir, fyrirtæki og önnur starfsemi sem eru starfsleyfisskyld samkvæmt reglugerðinni, hvort sem er á ábyrgð einstaklinga eða lögaðila skulu hafa gilt starfsleyfi gefið út af heilbrigðisnefnd. Óheimilt er að hefja starfsleyfisskylda starfsemi hafi starfsleyfi fyrir hana ekki verið gefið út.
Heilbrigðiseftirliti ber að kanna hvort fyrirtækin fara eftir ákvæðum laga og reglugerða. Margar reglugerðir gilda um þessi fyrirtæki. Hollustuháttareglugerðin nær þó að mestu yfir alla starfsemi er tilheyrir sviðinu. Aðrar sértækari reglugerðir gilda svo um ákveðna flokka fyrirtækja ss. veitinga – og gistihúsareglugerð, reglugerð um hollustuhætti á sund- og baðstöðum ofl.