Tvö starfsleyfi til kynningar - Stjörnugrís hf. vegna svínabúa að Sléttabóli og Bjarnastöðum

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65a á Selfossi:

  • Stjörnugrís hf., kt. 600667-0179, Vallá, 162 Reykjavík, vegna svínabús fyrir allt að 460 gyltur að Sléttabóli, 804 Selfoss. Sjá slóð hér.
  • Stjörnugrís hf., kt. 600667-0179, Vallá, 162 Reykjavík, vegna svínabús fyrir allt að 220 gyltur, 400 smágrísi og 800 sláturgrísi að Bjarnastöðum, 805 Selfoss. Sjá slóð hér.

Athugasemdum skal skilað skriflega til Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, Austurvegi 65a, 800 Selfoss eða á netfangið hsl@hsl.is. Frestur til að gera athugasemdir er til og með 23. mars 2023.