Tímabundið starfsleyfi til kynningar - Ræktunarsamband Flóa og Skeiða vegna borunar lághitaholu að Skólatúni 1, Laugarvatni
Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65a á Selfossi:
- Ræktunarsamband Flóa og Skeiða ehf., kt. 4106932169, Víkurheiði 6, 800 Selfoss, vegna borunnar lághitaholu fyrir Bláskógabyggð á lóðinni Skólatún 1, 840 Laugarvatni, áætlaður framkvæmdatími er um þrír mánuðir, sjá slóð hér.
Athugasemdum skal skilað skriflega til Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, Austurvegi 65a, 800 Selfoss eða á netfangið hsl@hsl.is. Frestur til að gera athugasemdir er til og með 17. mars 2025.