Tímabundið starfsleyfi til kynningar - Hveragerðisbær vegna flugeldasýningar 13. ágúst 2022
Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65a á Selfossi:
- Hveragerðisbær, kt. 650169-4849, vegna flugeldasýningar sem fram fer yfir Varmárgili í Hveragerði þann 13. ágúst 2022 kl. 22:30 – 23:00 – sjá slóð hér.
Athugasemdum skal skilað skriflega til Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, Austurvegi 65a, 800 Selfoss eða á netfangið hsl@hsl.is . Frestur til að gera athugasemdir er til og með 1. ágúst 2022.