Tímabundið starfsleyfi til kynningar - Efla hf. vegna niðurrifs mannvirkja að Austurvegi 2b, Selfossi

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65a á Selfossi:

  • Efla hf., kt. 6210790189, Lynghálsi 4, 110 Reykjavík, vegna niðurrifs spennistöðvar að Austurvegi 2b á Selfossi, F2185375, matshl. 01 0101, á tímabilinu 18. mars – 18. maí 2022 – sjá slóð hér.

Athugasemdum skal skilað skriflega til Heilbrigðiseftirlits Suðurlands. Frestur til að gera athugasemdir er til og með  14. mars 2022.