Tímabundið starfsleyfi til kynningar - Carbfix hf. vegna borunar vöktunarholu á Hellisheiði

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65a á Selfossi:

  • Carbfix hf., kt. 5310220840, Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík, vegna borunar vöktunarholu vegna niðurdælingar CO2 í jarðhitagarðinum við Hellisheiðarvirkjun, Kolviðarhóli, 816 Ölfus, á tímabilinu 30. mars – 30. september 2024, sjá slóð hér.

Athugasemdum skal skilað skriflega til Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, Austurvegi 65a, 800 Selfoss eða á netfangið hsl@hsl.is. Frestur til að gera athugasemdir er til og með 25. mars 2024