Tímabundið starfsleyfi til kynningar - Borgarverk ehf. vegna 40.000 m3 efnistöku á efnistökusvæði E70 á Tungnaáreyrum í Rangárþingi ytra

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65a á Selfossi:

  • Borgarverk ehf., kt. 5406740279, Sólbakki 17-19, 310 Borgarnes, vegna efnistöku, allt að 40.000 rúmmetrar af um 2,4 ha svæði á efnistökusvæði E70 á Tungnaáreyrum, 851 Hella, á tímabilinu  1. janúar 2025 – 1. júní 2026, sjá slóð hér.

Athugasemdum skal skilað skriflega til Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, Austurvegi 65a, 800 Selfoss eða á netfangið hsl@hsl.is. Frestur til að gera athugasemdir er til og með 20. desember 2024.