Tímabundið starfsleyfi til kynningar - Ásvélar vegna meðhöndlunar asbests að Lindarskógi 6-8 á Laugarvatni

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65a á Selfossi:

  • Ásvélar ehf., kt. 640594 2179, Hrísholti 11, 840 Laugarvatn, vegna tímabundins leyfis til að fjarlægja asbest úr byggingu við Lindarskóga 6-8 á Laugarvatni og flytja til móttökuaðila – sjá slóð hér.

Athugasemdum skal skilað skriflega til Heilbrigðiseftirlits Suðurlands. Frestur til að gera athugasemdir er til og með 21. júní 2022.