Starfsleyfi til kynningar - Vélhjólaíþróttaklúbburinn VÍK. vegna aksturssvæðis fyrir vélhjólaíþróttir í Ölfusi

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65a á Selfossi:

  • Vélhjólaíþróttaklúbburinn VÍK, Engjavegi 6, 104 Reykjavík, vegna aksturssvæðis fyrir vélhjólaíþróttir í Bolaöldu í Sveitarfélaginu Ölfusi – sjá slóð hér.

Athugasemdum skal skilað skriflega til Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, Austurvegi 65a, 800 Selfoss eða á netfangið hsl@hsl.is . Frestur til að gera athugasemdir er til og með 29. júlí 2022.