Starfsleyfi til kynningar - vegna bifreiða- og vélaverkstæðis og færanlegri starfsemi á steinmölun og framleiðslu á ofaníburði og fyllingarefnum.
Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65a á Selfossi
- Fossvélar ehf, Hellismýri 7, 800 Selfoss vegna bifreiða- og vélaverkstæðis og færanlegri starfsemi á steinmölun og framleiðslu á ofaníburði og fyllingarefnum. Sjá hér
Athugasemdum skal skilað skriflega til Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, Austurvegi 65a, 800 Selfoss eða á netfangið hsl@hsl.is . Frestur til að gera athugasemdir er til og með 29. júlí 2025