Starfsleyfi til kynningar - Sveitarfélagið Árborg vegna landmótunar við Stokkseyri

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65a á Selfossi:

  • Sveitarfélagið Árborg, kt. 650598 2029, Austurvegi 2, 800 Selfoss, vegna endurnýtingar óvirks jarðvegsúrgangs til landmótunar austan hesthúsasvæðisins við Stokkseyri – sjá slóð hér.

Athugasemdum skal skilað skriflega til Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, Austurvegi 65a, 800 Selfoss eða á netfangið hsl@hsl.is . Frestur til að gera athugasemdir er til og með 27. júlí 2022.