Starfsleyfi til kynningar - Suðurtak ehf. vegna efnistöku í Seyðishólum, Grímsnes-og Grafningshreppi

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65a á Selfossi:

  • Suðurtak ehf., kt. 5611090790, Brjánsstöðum, 805 Selfoss, vegna vinnslu allt að 33.000 m3 efnis árlega til ársins 2038, samtals 500.000 m3, á efnistökusvæði E24 í Seyðishólum, Grímsnes- og Grafningshreppi. Sjá slóð hér.

Athugasemdum skal skilað skriflega til Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, Austurvegi 65a, 800 Selfoss eða á netfangið hsl@hsl.is. Frestur til að gera athugasemdir er til og með 12. apríl 2023.