Starfsleyfi til kynningar - Sláturfélag Suðurlands slf. vegna sláturhúss og brennsluofns Fossnesi Selfossi
Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65a á Selfossi:
Sláturfélag Suðurlands svf., kt. 600269-2089, Fosshálsi 1, 110 Reykjavík, vegna sláturhúss og brennsluofns að Fossnesi, 800 Selfossi, sjá hér
Athugasemdum skal skilað skriflega til Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, Austurvegi 65a, 800 Selfoss eða á netfangið hsl@hsl.is . Frestur til að gera athugasemdir er til og með 21. maí 2025