Starfsleyfi til kynningar - Skálpi ehf. vegna starfsemi í Skálpanesi við Kjalveg og Prentmet ehf vegna prentsmiðju Selfossi

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65 á Selfossi:

  • Starfsleyfisskilyrði fyrir Prentmet ehf, vegna endurnýjunar starfsleyfis fyrir prentsmiðju Eyravegu 25, 800 Selfossi  – sjá slóð hér
  • Starfsleyfisskilyrði fyrir Skálpa ehf. vegna endurnýjunar starfsleyfis fyrir samkomusal og afþreyingarstarfsemi með vélknúin faratæki í Skálpanesi við Kjalveg, Bláskógabyggð – sjá slóð hér

Athugasemdum skal skilað skriflega á skrifstofu Heilbrigðiseftirlits Suðurlands að Austurvegi 65, Selfossi. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 6. maí 2019.