Starfsleyfi til kynningar - Hafnarnes VER ehf vegna fiskvinnslu og Skálpi ehf. Geldingafelli, Skálpanesvegi við Bláfellsháls

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65 á Selfossi:

  • Starfsleyfisskilyrði fyrir Skálpa ehf. vegna endurnýjunar starfsleyfis fyrir afþreyingarstarfsemi með vélknúin faratæki í Skálpanesi við Kjalveg, Bláskógabyggð, 801 Selfossi – sjá slóð hér
  • Starfsleyfisskilyrði fyrir Hafnarnes VER hf. vegna endurnýjunar starfsleyfis fyrir fiskvinnslu, Óseyrarbreut 16, 815 Þorlákshöfn – sjá slóð hér

Athugasemdum skal skilað skriflega á skrifstofu Heilbrigðiseftirlits Suðurlands að Austurvegi 65, Selfossi. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 10. maí 2019.