Starfsleyfi til kynningar - Síld og fiskur ehf. vegna svínabús að Þórustöðum 1 í Sveitarfélaginu Ölfusi

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65a á Selfossi:

  • Síld og fiskur ehf., kt. 5902982399, Dalshrauni 9b, 220 Hafnarfjörður, vegna svínabús með allt að 400 smágrísi (7-30 kg) og 750 alisvín (>30 kg) að Þórustöðum 1, 816 Ölfus. Sjá slóð hér.

Athugasemdum skal skilað skriflega til Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, Austurvegi 65a, 800 Selfoss eða á netfangið hsl@hsl.is. Frestur til að gera athugasemdir er til og með 11. desember 2023.