Starfsleyfi til kynningar - Set ehf. vegna framleiðslu hitaveitu-, vatnsveitu-, fráveitu og rafmagnsröra úr plastefnum og stáli á Selfossi

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65a á Selfossi:

  • Set ehf., kt. 6102780359, Eyravegi 41, 800 Selfoss, vegna framleiðslu hitaveitu-, vatnsveitu-, fráveitu- og rafmagnsröra úr plastefnum og stáli að Eyravegi 35, 37, 39, 41, 43-45, 47, 49 og Gagnheiði 1 og 7, 800 Selfoss. Sjá slóð hér.

Athugasemdum skal skilað skriflega til Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, Austurvegi 65a, 800 Selfoss eða á netfangið hsl@hsl.is. Frestur til að gera athugasemdir er til og með  20. nóvember 2024.