Starfsleyfi til kynningar – Reykjagarður hf. vegna slátrunar og kjötvinnslu alifugla

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., er starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65 á Selfossi:

  • Reykjagarður hf. Fossháls 1, 110 Reykjavík, vegna sláturhúss og kjötvinnslu að Dynskálum 42-46, 850 Hella – sjá slóð hér

Athugasemdum skal skilað skriflega til Heilbrigðiseftirlits Suðurlands. Frestur til að gera athugasemdir er til og með 1. maí 2020