Starfsleyfi til kynningar - Orkuveita Reykjavíkur vegna borunnar HR-01 í Meitlum norður í Ölfusi
Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65a á Selfossi:
Orkuveita Reykjavíkur, kt. 5512983029, Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík, vegna borunnar rannsóknarholu HR-01 í Meitlum norður í Ölfusi, E: 380995,90 N: 391587,90, á tímabilinu 1. september – 31. desember 2025, sjá hér.
Athugasemdum skal skilað skriflega til Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, Austurvegi 65a, 800 Selfoss eða á netfangið hsl@hsl.is. Frestur til að gera athugasemdir er til og með 6. maí 2025.