Starfsleyfi til kynningar - Móttöku- og flokkunarstöð fyrir úrgang í Þorlákshöfn

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65a á Selfossi:

  • Sveitarfélagið Ölfus, kt. 420369 7009, Hafnarbergi 1, 815 Þorlákshöfn, vegna móttöku- og flokkunarstöðvar fyrir úrgang að Norðurbakka 6 í Þorlákshöfn – sjá slóð hér.

Athugasemdum skal skilað skriflega til Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, Austurvegi 65a, 800 Selfoss eða á netfangið hsl@hsl.is . Frestur til að gera athugasemdir er til og með 5. maí 2022.