Starfsleyfi til kynningar - Landmótun með óvirkum jarðvegsúrgangi í Seyðishólum, Grímsnes- og Grafningshreppi

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65a á Selfossi:

  • Grímsnes- og Grafningshreppur, kt. 590698 2109, Stjórnsýsluhúsinu Borg, 805 Selfoss, vegna landmótunar með óvirkum jarðvegsúrgangi á efnistökusvæði E17 í aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2022-2032, sjá slóð hér.

Athugasemdum skal skilað skriflega til Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, Austurvegi 65a, 800 Selfoss eða á netfangið hsl@hsl.is . Frestur til að gera athugasemdir er til og með 8. desember 2022.