Starfsleyfi til kynningar - Landeldi vegna slátrunar og vinnslu fisks að Laxabraut í Þorlákshöfn

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65a á Selfossi:

  • Landeldi hf., kt. 650417 1510, Urðarhvarfi 8b, 203 Kópavogur, vegna slátrunar og vinnslu fisks, aðra en í viðauka I með lögum nr. 7/1998, að Laxabraut 21 í Þorlákshöfn , sjá slóð hér og hér.

Athugasemdum skal skilað skriflega til Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, Austurvegi 65a, 800 Selfoss eða á netfangið hsl@hsl.is . Frestur til að gera athugasemdir er til og með 11. janúar 2023.