Starfsleyfi til kynningar - Kuldaboli ehf. vegna ísframleiðslu og Prosper ehf. vegna snyrtivöruframleiðslu

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65 á Selfossi:

  • Kuldaboli ehf, Hafnarskeið 12, 815 Þorlákshöfn – starfsleyfi vegna ísframleiðslu að Hafnarbakka 30, 815 Þorlákshöfn – sjá slóð hér
  • Prosper ehf, Bjarkarheiði 16, 810 Hveragerði – Starfsleyfi vegna snyrtivöruframleiðslu að Bjarkarheiði 16, 810 Hveragerði – sjá slóð hér

Athugasemdum skal skilað skriflega til Heilbrigðiseftirlits Suðurlands. Frestur til að gera athugasemdir er til og með 8. júní 2020.