Starfsleyfi til kynningar - Kjörís ehf. Hveragerði

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65a á Selfossi:

  • Kjörís ehf., kt. 6901694289, Austurmörk 15, 810 Hveragerði, vegna framleiðslu á ís, íssósum og dýfum að Austurmörk 15. 810 Hveragerði, sjá slóð hér.

Athugasemdum skal skilað skriflega til Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, Austurvegi 65a, 800 Selfoss eða á netfangið hsl@hsl.is . Frestur til að gera athugasemdir er til og með 28. október 2022.