Starfsleyfi til kynningar - Ístak hf. vegna efnistöku og vinnslu jarðefna við Tungnaáreyrar ofan við Hald
Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65a á Selfossi:
Ístak hf., Bugðufljóti 19, 270 Mosfellsbæ, vegna efnistöku og vinnslu jarðefna við Tungnaáreyrar ofan við Hald, efnistökusvæði E70, Rangárþingi ytra. Sjá hér.
Athugasemdum skal skilað skriflega til Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, Austurvegi 65a, 800 Selfoss eða á netfangið hsl@hsl.is . Frestur til að gera athugasemdir er til og með 14. maí 2025