Starfsleyfi til kynningar - Grímsnes- og Grafningshreppur vegna stækkunar fráveitumannvirkis, Borg, Grímsnesi

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65a á Selfossi:

Grímsnes- og Grafningshreppur, kt. 590698-2109, vegna fráveitu og hreinsivirkis vestan við Borg, Grímsnesi, 805 Selfoss.  Sjá hér.

Athugasemdum skal skilað skriflega til Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, Austurvegi 65a, 800 Selfoss eða á netfangið hsl@hsl.is . Frestur til að gera athugasemdir er til og með 12. september 2025.