Starfsleyfi til kynningar - Grímsnes- og Grafningshreppur vegna skólphreinsistöðvar í Ásborgum, Grímsnesi

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65a á Selfossi:

  • Grímsnes- og Grafningshreppur, kt. 5906982109, Stjórnsýsluhúsinu Borg, 805 Selfoss, vegna skólphreinsistöðvar í Ásborgum, Grímsnesi, 805 Selfoss. Sjá slóð hér.

Athugasemdum skal skilað skriflega til Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, Austurvegi 65a, 800 Selfoss eða á netfangið hsl@hsl.is. Frestur til að gera athugasemdir er til og með 10. mars 2023.