Starfsleyfi til kynningar - Fossdekk ehf. vegna hjólbarðaverkstæðis og smurstöðvar

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65a á Selfossi:

  • Fossdekk ehf., kt. 600198 2549, Eyravegi 57, 800 Selfoss, vegna hjólbarðaverkstæðis, sjá slóð hér, og vegna smurstöðvar, sjá slóð hér.

Athugasemdum skal skilað skriflega til Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, Austurvegi 65a, 800 Selfoss eða á netfangið hsl@hsl.is . Frestur til að gera athugasemdir er til og með 28. september 2022.