Starfsleyfi til kynningar - Eden mining ehf. vegna efnistöku á efnistökusvæði E4, Litla-Sandfelli, í Sveitarfélaginu Ölfusi

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65a á Selfossi:

  • Eden mining ehf., kt. 541008 1600, Ármúla 18, 108 Reykjavík, vegna efnistöku í Litla-Sandfelli, E4, í landi Breiðabólstaðar, 816 Ölfus. Sjá slóð hér.

Athugasemdum skal skilað skriflega til Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, Austurvegi 65a, 800 Selfoss eða á netfangið hsl@hsl.is. Frestur til að gera athugasemdir er til og með  18. nóvember 2024.