Starfsleyfi til kynningar - Brennur í Árborg og Grímsnes- og Grafningshreppi

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., eru starfsleyfisskilyrði vegna brennuleyfis og flugeldasýningar til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65 á Selfossi:

  • Hjálparsveitin Tintron, Hraunbraut 2, 805 Selfoss, vegna brennu 31. desember nk. við golfvöllinn á Borg, 805 Selfoss – sjá slóð hér
  • Sveitarfélagið Árborg, Austurvegur 2, 800 Selfoss, vegna brennu 31. desember nk. við Eyrarbakka vestan við Hafnarbrú, 820 Eyrarbakka – sjá slóð hér
  • Sveitarfélagið Árborg, Austurvegur 2, 800 Selfoss, vegna brennu 31. desember nk. við Selfoss á opnu svæði gámasvæðis að Víkurheiði 4, 800 Selfoss – sjá slóð hér
  • Sveitarfélagið Árborg, Austurvegur 2, 800 Selfoss, vegna brennu 31. desember nk. við Stokkseyri vestan við Arnarhólma, 825 Stokkseyri – sjá slóð hér

Athugasemdum skal skilað skriflega á skrifstofu Heilbrigðiseftirlits Suðurlands að Austurvegi 65, Selfossi. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 27. desember næstkomandi.