Starfsleyfi til kynningar - Brenna og flugeldasýning Sigtúnsgarði á Selfossi

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., eru starfsleyfisskilyrði vegna brennuleyfis og flugeldasýningar til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65 á Selfossi:

  • Knattspyrnufélag Árborgar, Kerhólum 8, 800 Selfoss, vegna brennu og flugeldasýnar 8. ágúst nk. á Sigtúnsgarði, 800 Selfoss – sjá slóð hér

Athugasemdum skal skilað skriflega á skrifstofu Heilbrigðiseftirlits Suðurlands að Austurvegi 65, Selfossi. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 27. júlí næstkomandi.