Starfsleyfi til kynningar - Brenna í Vestmannaeyjum

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., eru starfsleyfisskilyrði vegna brennuleyfis og flugeldasýningar til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65 á Selfossi:

  • ÍBV íþróttafélag, Týsheimili, 900 Vestmannaeyjar, vegna brennu 3. janúar nk. við malarvöllinn við Löngulág, 900 Vestmannaeyjar – sjá slóð hér

Athugasemdum skal skilað skriflega á skrifstofu Heilbrigðiseftirlits Suðurlands að Austurvegi 65, Selfossi. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 1. janúar næstkomandi.