Starfsleyfi til kynningar - Áramótabrenna á Kirkjubæjarklaustri
Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., eru starfsleyfisskilyrði vegna brennuleyfis og flugeldasýningar til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65 á Selfossi:
- Skaftárhreppur, Klausturvegur 10, 880 Kirkjubæjarklaustur, vegna brennu 31. desember nk. við gámasvæði sveitarfélagsins á Stjórnarsandi, 880 Kirkjubæjarklaustur – sjá slóð hér
Athugasemdum skal skilað skriflega á skrifstofu Heilbrigðiseftirlits Suðurlands að Austurvegi 65, Selfossi. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 16. desember næstkomandi.