Starfsleyfi til kynningar: Algaennovation Iceland og N1 vegna afgreiðslustöðvar eldsneytis á Laugarvatni, Geysi, Flúðum og Vík

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65 á Selfossi:

  • N1 ehf. vegna endurnýjunar starfsleyfis fyrir afgreiðslustöðvar eldsneytis að Dalbraut 8, 840 Laugarvatni – sjá slóð hér
  • N1 ehf. vegna endurnýjunar starfsleyfis fyrir afgreiðslustöðvar eldsneytis að Geysi í Haukadal, 801 Selfoss – sjá slóð hér
  • N1 ehf. vegna endurnýjunar starfsleyfis fyrir afgreiðslustöðvar eldsneytis að Grund, 845 Flúðir – sjá slóð hér
  • N1 ehf. vegna endurnýjunar starfsleyfis fyrir afgreiðslustöðvar eldsneytis að Austurvegi 18, 870 Vík í Mýrdal – sjá slóð hér
  • Algaennovation Iceland ehf. vegna starfsleyfis fyrir framleiðslu smáþörunga til notkunar í fóður fyrir fiskeldi að Norðurvöllum 7, 816 Ölfus – sjá hér

Athugasemdum skal skilað skriflega til Heilbrigðiseftirlits Suðurlands. Frestur til að gera athugasemdir er til og með 23. júlí 2019