Starfsleyfi til kynningar - Heiðarás ehf. vegna efnistöku í landi Skálabrekku, Bláskógabyggð

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65a á Selfossi:

  • Heiðarás ehf., kt. 6711690189, Heiðarási, 806 Selfoss, vegna efnistöku, allt að 33.000 rúmmetra, á efnistökusvæði E3 í landi Skálafells, 806 Selfoss. Sjá slóð hér.

Athugasemdum skal skilað skriflega til Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, Austurvegi 65a, 800 Selfoss eða á netfangið hsl@hsl.is. Frestur til að gera athugasemdir er til og með 10. ágúst 2023.