Starfsleyfi fyrir flugeldasýningu til kynningar - Sveitarfélagið Ölfus, Þorlákshöfn

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65 á Selfossi:

  • Sveitarfélagið Ölfus, Hafnarbergi 1, 815 Þorlákshöfn, vegna flugeldasýningar á óbyggðu svæði við enda Óseyrarbrautar í Þorlákshöfn,
    31. desember 2021 frá kl. 17:00 – 19:00. – sjá slóð  hér.

Athugasemdum skal skilað skriflega til Heilbrigðiseftirlits Suðurlands. Frestur til að gera athugasemdir er til og með 27. desember 2021.