Öllu starfsfólki Heilbrigðiseftirlits Suðurlands hefur verið sagt upp störfum vegna breytinga á fyrirkomulagi heilbrigðiseftirlits sem taka gildi 1. janúar 2027.
Um leið verða heilbrigðisnefndir sveitarfélaga lagðar niður. Eftirlit með hollustuháttum og mengunarvörnum færist að mestu til Umhverfis- og orkustofnunar og matvælaeftirlit til Stofnunar atvinnuveganna. Sum verkefni verða áfram á ábyrgð sveitarfélaga.
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands sinnir verkefnum áfram fram að breytingum. Samhliða því að full starfsemi á að vera til áramóta hjá embættinu bætast við verkefni við yfirfærslu á gögnum til ofangreindra ríkisstofnana sem eiga að sinna verkefnunum frá 1. janúar 2027. Því þarf að forgangsraða verkefnum og búast má við að afgreiðsla erinda og svör við fyrirspurnum taki lengri tíma en áður. Við biðjum þjónustuþega um skilning á stöðunni.
