Breyting á starfsleyfi til kynningar - Stækkun alifuglabús Reykjabúsins í Lambhaga í Ölfusi

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65a á Selfossi:

  • Reykjabúið ehf., kt. 581187 2549, Suður-Reykjum 1, 271 Mosfellsbær, vegna stækkunar alifuglabús Reykjabúsins í Lambhaga í Ölfusi úr 3.750 kalkúnum í hverjum eldishóp í 6.000 kalkúna og 12.000 kjúklinga í hverjum eldishóp, sjá slóð hér.

Athugasemdum skal skilað skriflega til Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, Austurvegi 65a, 800 Selfoss eða á netfangið hsl@hsl.is . Frestur til að gera athugasemdir er til og með 11. janúar 2023.